154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:14]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir ræðu og mjög góða hugmynd um það að fá skýrslu með upplýsingum um ástandið í Grindavík og hvernig hefur verið brugðist við. Ég tel einmitt að það skorti upplýsingar, kerfisbundna söfnun upplýsinga og nánast fræðirannsóknir á því hvernig við höfum staðið okkur, hvað megi læra af þessu, hvað megi gera betur og hverjir hafi fallið milli skips og bryggju í aðgerðum ríkisstjórnarinnar eða stjórnvalda og okkar hér, vegna þess að við verðum að geta lært af þessu svo að við getum verið betur í stakk búin til að bregðast við svipuðum áföllum síðar. Það munu koma áföll seinna á Íslandi hvað þetta varðar á einhverjum tímapunkti, vonandi sem sjaldnast. Það væri gaman að heyra nánar sjónarmið hv. þingmanns um hvernig hann myndi setja fram spurningarnar í þessari skýrslubeiðni. Ég tel að lærdómskúrfan núna — þegar við erum að framlengja, eins og kom fram í ræðu minni varðandi rekstrarbæturnar, húsnæðisstuðninginn og bætur vegna launa og líka afurðasjóðinn þá er ekkert fjallað um — t.d. þar, þau voru að framlengja, það var ekkert fjallað um hvað gekk vel, hvað gekk illa, hversu margir fengu ekki bætur, hversu margir væri æskilegt að fengju bætur o.s.frv. Það var bara framlengt í tíma og búið. Í þessu frumvarpi er engin þarfagreining á þessu. Hver er þörfin á Afurðasjóði Grindavíkurbæjar? Hvar er þörfin? Það er ekkert flókið að taka það saman. Hvað eru margir lagerar fyrir fiskafurðir? Hvað eru margir stórir lagerar fyrir matvæli og fóður o.s.frv.? Það væri gaman að heyra sjónarmið hv. þingmanns hvað þetta varðar.