Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og vonast til að fá stuðning hv. þingmanns í að vera með í slíkri skýrslubeiðni. Það er einmitt spurning hvernig við orðum þetta á sem bestan hátt, spurningarnar. Það er líka spurning hvort skýrslan þurfi að vera nokkrar skýrslur af því að það þarf að spyrja nokkur ráðuneyti um gögn. Þetta er eitthvað sem ég mun sækja í viskubrunn þeirra sem eru mér reyndari í að skrifa skýrslubeiðnir en ég held að ef við vinnum saman þvert á flokka hér í þinginu þá getum við nú alveg fundið leiðir til að spyrja að hinu rétta.
Varðandi það ákveðna frumvarp sem verið er að ræða hér þá get ég upplýst hv. þingmann um það að við báðum um ákveðin gögn til að reyna að átta okkur á því hversu mikið talið væri að þetta þyrfti að dekka. Einu gögnin sem við fengum voru þau, og sú tala kemur áður en Þorbjörn ákveður að loka sinni vinnslu, að 400 millj. kr. væri svona hámarkið af afla. Þetta er aðallega spurning um afla, hvað gæti verið mikill óunninn afli í fiskvinnslunni á einum tíma vegna þess að matvælalagerar hjá veitingastöðunum eru miklu lægri upphæðir og þar kom fram að 400 millj. kr. ættu að dekka það algerlega. Það voru einu tölurnar sem við fengum. Við báðum um minnisblöð um meira, höfum ekki fengið nánari upplýsingar en 400 millj. kr. ættu alla vega að dekka þessa ákveðnu þörf. Það var rætt í atvinnuveganefnd, bara þannig að hv. þingmaður viti af því.