154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:22]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka Gísla Rafni Ólafssyni fyrir sínar ræður hér í dag sem ég hef hlustað á og þótt mjög góðar og yfirgripsmiklar og lýsa auðvitað þekkingu þingmannsins á því að vera í svona almannavarnaástandi. Grindavík er auðvitað á íslenskum skala ekki lítið samfélag, það er stórt samfélag en það er lítið í samanburði við kannski höfuðborgarsvæðið og ég hefði talið að óvenjulegar aðstæður myndu krefjast frekar óvenjulegra viðbragða þar sem við værum ekki föst í einhverjum kerfislægum hugsunum um hver eigi að fá hvað heldur frekar hvernig við getum hjálpað öllum. Í því skyni væri forvitnilegt að heyra sjónarmið þingmannsins, ekki síst í ljósi þess að þingmaðurinn hefur mikla reynslu af því að vinna í ástandi þar sem hlutir þurfa að gerast hratt og örugglega. Í slíkum aðstæðum þá víkur kannski skriffinnskan og formlegheitin og stundum þarf bara að græja málin. Hefur hv. þingmanni fundist íslensk stjórnvöld festast um of í kerfislægri hugsun þegar kemur að því að ná utan um þessa stöðu? Hefur skort á skapandi lausnir og hraða?