154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:25]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Já, það er dálítið skrýtið að hamfarir séu gerast 11 km frá heimili manns í stað þess að vera vanur að fljúga einhverja 11.000 km hinum megin á hnöttinn til þess að takast á við hamfarirnar.

Hv. þingmaður spurði út í það hvort við værum ekki með nógu mikið af skapandi lausnum. Þegar kemur að sérstaklega bara viðbragðinu sjálfu á vettvangi og því sem verið er að gera í kringum Grindavík sjálfa þá held ég að það hafi alls ekki verið skortur á skapandi lausnum. Er það að leggja heitavatnspípu ofan á glóandi hraun ekki dæmi um virkilega skapandi lausn? Það er samt sem áður ávallt þannig í svona aðgerðum að það koma upp hugmyndir þar sem viðkomandi ákvörðunartakar, ráðherrar í þessu tilfelli, hugsa kannski þegar þeir horfa á þær: Ég er að fara að gera eitthvað dýrt en kannski þarf ekkert á því að halda. Verð ég þá ekki skammaður eða skömmuð fyrir að eyða pening í eitthvað sem ekki er nýtt? Varnargarðarnir eru gott dæmi um þetta en þar tók ríkisstjórnin, hæstv. dómsmálaráðherra, ákvörðun sem hefði getað kannski komið niður á henni eftir á ef ekkert hefði gerst, en það gerðist eitthvað og þeir eru búnir að sanna sig. Það er mjög oft tregða til að taka ákvörðun um að gera eitthvað og ef ákvarðanir eru teknar of seint þá eru þær einmitt oft slæmar ákvarðanir. En við þurfum að læra það að í svona umhverfi þurfum við stundum að taka ákvarðanir (Forseti hringir.) og ef þær eru teknar miðað við bestu gögn og upplýsingar á þeim tíma, jafnvel þó að eitthvað annað komi í ljós síðar, eru þær góðar ákvarðanir.