154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[16:27]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir svarið. Ég er sammála þingmanninum. Mér hefur fundist þetta almenna viðbragð hjá viðbragðsaðilum vera mjög skapandi og mjög hugrakkt á köflum þar sem einmitt hefur þurft að taka erfiðar ákvarðanir með litlum fyrirvara og keyra svolítið blint áfram í von um að aðgerðirnar beri tilætlaðan árangur. Við megum auðvitað vera mjög stolt af því hvernig lögreglan og almannavarnir og björgunarsveitirnar og allir viðbragðsaðilar hafa staðið vaktina fyrir fólkið í Grindavík og fyrir Grindavík sjálfa.

Þegar ég var að vísa til skapandi hugsunar var ég kannski meira að hugsa um öll þessi stuðningsúrræði sem eru í boði fyrir Grindvíkinga til að tryggja þeirra fjárhagslega öryggi, þeirra afkomu, þeirra lífsviðurværi og þeirra framtíð. Mér hefur fundist, miðað við þá umræðu sem hefur átt sér stað hér í dag, samhljómur hjá þeim hv. þingmönnum sem hér hafa talað um að það eru enn þá hópar sem falla á milli þilja og hafa ekki fengið svör um sína framtíð. Stundum líður mér eins og maður sé kannski pínu að horfa á einhvers konar atriði úr þættinum Little Britain þar sem tölvan segir alltaf bara nei. Kerfi eru mannanna verk og það er okkar að standa vörð um það að þau virki. Þess vegna líst mér vel á umrædda skýrslubeiðni sem þingmaðurinn nefnir hér. En óttast hann ekki að slík skýrslubeiðni myndi auka á skrifræði í þessu samhengi í staðinn fyrir að fara bara út í hreinar aðgerðir?