Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Já, það er kannski meira þegar kemur að okkar aðgerðum hér inni og náttúrlega innan ríkisstjórnarinnar að þar höfum við verið svolítið föst í því að nýta okkur aðferðafræðina frá Covid-tímanum. Þar held ég að sé svolítið mikilvægt að átta sig á því að eðli hamfara getur verið mjög misjafnt. Nú eyddi ég tveimur þriðju hlutum úr ári í Vestur-Afríku þegar ebólufaraldurinn var. Það var allt öðruvísi viðbragð heldur en nokkrum mánuðum seinna þegar ég fór til Nepal eftir jarðskjálftana. Sóttvarnir og annað er annað en viðbragð við hamförum eins og jarðskjálftum og eldgosum. Það er dálítið annað að vera með hættusvæði þar sem enginn má fara inn á heldur en það að enginn megi mæta í vinnuna. Það er tvennt ólíkt vegna þess að annað geturðu gert í fjarvinnu og ýmislegt. Það er alls konar svona sem kemur upp. Við þurftum ekkert að hugsa þannig lagað séð um húsnæði t.d. þegar heimsfaraldurinn var. Jú, við þurftum að leigja einhver hótel til að setja fólk á sem var í einangrun en við þurftum ekki að hjálpa því að flytja frá einum stað yfir á annan. Ég held samt að allt það sem ríkisstjórnin hefur gert í þessum málum hafi verið gert af góðum vilja og það er alls ekki hugmynd mín að svona skýrsla sé að reyna að vera með einhvern áfellisdóm á það heldur miklu frekar það að við þurfum að takast á við þessa hluti áfram. Við þurfum að klára að styðja Grindvíkinga. Við getum bara gert það ef við höfum gögnin og skilninginn á því hvert við þurfum að fara.