154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Eva Dögg Davíðsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meirihluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, nr. 13/1998, forstaða og stafrænt aðgengi.

Frumvarpinu er ætlað að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands auk þess sem ráðherra er veitt heimild til að fela forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar eða ríkisaðila að gegna einnig forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs til ákveðins tíma í senn.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er nánar frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.

Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til breytingu á frumvarpinu þess efnis að 2. gr. þess falli brott. Með 2. gr. er lögð skylda á stofnanir sem safna upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem Skattinn og Hagstofu Íslands, að veita Verðlagsstofu skiptaverðs aðgang að þeim upplýsingum með rafrænum eða stafrænum hætti.

Fyrir nefndinni kom fram að ekki væru fordæmi fyrir því, að upplýsingaöflunarheimildum Hagstofu frátöldum, að svo opin heimild til miðlunar tollagagna að hluta eða öllu leyti væri leidd í lög. Í minnisblaði ráðuneytisins til nefndarinnar um málið telur ráðuneytið rétt að fram fari endurskoðun á ákvæðum 2. gr. í ljósi umsagna frá Skattinum og samtals Verðlagsstofu við Hagstofu Íslands. Nauðsynlegt er að um ákvæðið ríki sátt og sameiginlegur skilningur milli stofnana. Leggur meiri hlutinn af þeim sökum til breytingu á frumvarpinu þess efnis að 2. gr. falli brott.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta atvinnuveganefndar rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Þórarinn Ingi Pétursson, Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.