154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[16:35]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að það er seint sem hlutirnir koma mér á óvart hér á hinu háa Alþingi, svo mikið er víst. Hér er lagt fram frumvarp og þar segir, með leyfi forseta:

„Það er einkum gert til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands og stuðla þannig að meira gagnsæi fiskverðs og afurðaverðs og styttri málsmeðferðartíma fyrir úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.“

Þetta er megintilgangur frumvarpsins, til þess er það lagt fram. Þetta er ekki langt frumvarp, þetta eru sex greinar. Kjarnaákvæði í þessu frumvarpi er 2. gr. þess. Hvað gerir meiri hluti atvinnuveganefndar? Jú, leggur til að hún verði felld brott, að ákvæðið um gagnasöfnunin verði fellt brott. Þetta er algerlega með ólíkindum, þessi vinnubrögð. Hvernig væri bara að draga frumvarpið til baka? Hv. framsögumaður nefndarálits kom og las þetta upp og sagði að þetta væri til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs en það ætti hins vegar að taka heimildina burt þannig að eftir stendur núll. Það er ekki verið að auka neinar heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs.

Það er deginum ljósara að þetta er ein mikilvægasta stofnunin í sjávarútveginum, langmikilvægasta stofnun hvað varðar verðmæti landaðs afla. Þetta er stofnun sem ákveður það hvað verðið er á lönduðum afla í landinu. Það fer svo rosalega lítill hluti, pínulítill hluti, aflans á markað og þá er það Verðlagsstofa skiptaverðs sem ræður því hvert verðið er. Ég veit að þetta er fjögurra manna stofnun en sjálfstæði hennar skiptir öllu máli, öllu. Það er grundvallaratriði að þeir fái aðgang að skattupplýsingum. Ráðuneytið vill endurskoða frumvarpið. Af hverju komið þið þá ekki með breytta útgáfa af þessu ákvæði? (Forseti hringir.) Hvernig væri að fara í þá vinnu? Hvað eruð þið að gera hérna? Hvaða frumvarp erum við að tala um? (Forseti hringir.) Það er ekkert eftir af þessu frumvarpi af því að það er búið að taka burt aðalákvæðið.