Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir sitt andsvar. Þetta frumvarp er í rauninni tvíþætt. Það er annars vegar til þess, eins og hv. þingmaður nefnir, að auka aðgengi að stafrænum upplýsingum. Nú má halda því til haga að Verðlagsstofa skiptaverðs hefur vissulega aðgang að upplýsingum frá Skattinum og nýtir sér einnig upplýsingar frá Hagstofunni til að birta þessi verð sem hún gerir. Í upprunalega frumvarpinu er verið að mæla fyrir því að upplýsingarnar verði meira í rauntíma og það er ofboðslega mikilvægt og nefndin tekur undir það. Hins vegar kom fram bæði í umsögnum og öðru að þetta væri ákveðið tæknilegt úrlausnarefni. Þess vegna var ákveðið að taka 2. gr. til baka og þetta verður unnið í samráði við viðeigandi stofnanir í ráðuneytinu. Ég tek undir mikilvægi þess að þetta verði unnið áfram en að sama skapi er það sem eftir stendur leyfi ráðherra til að skipa forstjóra yfir stofnuninni, þá innan annarrar stofnunar, sem er ákveðið hagræði og ég tel mikilvægt að það nái fram að ganga.(Gripið fram í.) Þá gef ég þingmanni tækifæri til að koma að öðru andsvari.