154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[16:39]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta frumvarp fjallar um forstöðu og stafrænt aðgengi. Auðvitað eru tæknilegir erfiðleikar við að veita upplýsingar með stafrænum hætti hafi það ekki verið gert áður. Það þarf alltaf að koma ákveðnu kerfi upp og gera það. En ég hefði haldið að við undirbúning þessa frumvarp þá væri það skoðað og svo sé lagt fram frumvarp, við getum gert þetta. En svo uppgötvar ráðuneytið sjálft að nei, það er ekki hægt að gera þetta, það þarf að endurskoða allt saman. Hvað eruð þið að gera eiginlega? Leggja fram frumvarp um ekki neitt? Nei, við getum ekki gert þetta. Var undirbúningurinn fyrir þetta frumvarp það lélegur að það var ekki hægt að finna það út að það þyrfti meiri undirbúning og það þyrfti að endurskoða ákvæðið? Ráðuneytið fer bara fram á endurskoðun ákvæðis og þá þarf að endurskoða textann í ákvæðinu þannig að hann henti Verðlagsstofu skiptaverðs.

Og þetta með að fela forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar jafnframt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs, hv. framsögumaður sagði að þetta væri mikilvægt ákvæði: Hvað er svona mikilvægt við þetta ákvæði? Þetta er grundvallarstofnun í sjávarútvegi sem verðleggur fisk sem landað er og það er ekki hægt að hafa sjálfstæðan forstöðumann yfir þessari stofnun þótt lítil sé? Ég tek dæmi: Embætti forseta Íslands er eins manns stofnun í grunninn. Af hverju er það ekki lagt niður? Þetta er fjögurra manna stofnun sem er fyrir grundvallaratvinnuveg þjóðarinnar. Nei, það á að hafa það þannig að það á að fela forstöðumanni annarrar stofnunar að gegna forstöðu hennar. Þetta er náttúrlega algjörlega fáránlegt. Ég skora á hv. þingmann að útskýra það fyrir þingheimi hvernig þetta samræmist því að þetta sé sjálfstæð stofnun. Hvernig getur stofnun verið sjálfstæð þegar henni er stýrt utan úr bæ af forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar? Þetta er svo hlægilegt og fáránlegt, þetta gengur gegn allri heilbrigðri skynsemi. Ég skora á hv. þingmann, framsögumann þessa máls, að draga þetta frumvarp bara til baka (Forseti hringir.) ef það á að sleppa 2. gr. og þessi 1. gr. er algerlega fáránleg, bara sorrí. (Forseti hringir.) Afsakið að ég nota enska slettu hérna en hvað á maður að segja?