154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[16:41]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Eva Dögg Davíðsdóttir) (Vg) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og skil að honum sé heitt í hamsi. Ég vil vísa hérna, með leyfi forseta, í minnisblað sem kom frá matvælaráðuneytinu varðandi sjálfstæði stofnunarinnar því vissulega er mikilvægt fyrir alla að sjálfstæði stofnunarinnar haldist, enda er hún mikilvæg til að tryggja gagnsæi og hefur það lögbundna hlutverk í rauninni að vera eins konar milligönguaðili milli sjómanna og útgerðarmanna. Í minnisblaðinu er verið að svara áhyggjum um sjálfstæði stofnunarinnar og þar segir, með leyfi forseta:

„Þær breytingar sem lagðar eru til með 1. gr. frumvarpsins hafa ekki áhrif á stjórnskipulega stöðu stofnunarinnar eða draga úr sjálfstæði hennar frá því sem nú er. Ráðuneytið vekur athygli á því að Verðlagsstofa skiptaverðs er ekki sjálfstæð stofnun skv. núgildandi lögum heldur lægra sett stjórnvald sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra en er sjálfstæð gagnvart samningsaðilum.“

Ég tel því ekki að það sé verið að draga úr sjálfstæði stofnunarinnar. Ég tel að þetta sé ákveðin hagræðing og Verðlagsstofa skiptaverðs og starfsmenn hennar hafa ekki sett sig upp á móti þessum hluta. Hins vegar tek ég undir með þingmanninum að það er mikilvægt að vinna þetta vel núna áfram þannig að það sé hægt að leggja fram 2. gr. að nýju og kannski er eðlilegt, eðli málsins samkvæmt þar sem þetta eru tvö ólík atriði, að þetta komi fram í tveimur ólíkum frumvörpum. Ég er bara viss um að það sé verið að vinna þetta vel núna í ráðuneytinu í samráði (Gripið fram í.) þannig að þeir hagaðilar sem koma að þessu máli verði sáttir og það verði gott flæði upplýsinga í rauntíma sem er mjög mikilvægt hagsmunamál. (Gripið fram í.)