Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir andsvarið. Það er rétt að við sátum fundi saman og þar komu ýmis sjónarmið fram. Nú þekki ég ekki ferlið og get ekki svarað fyrir það hversu mikið samráð átti sér stað áður en frumvarpið var lagt fram. En vissulega kemur í ljós að þarna þarf að vinna það betur. Við sáum það auðvitað, bæði á umsögnum og líka á heimsóknum frá Skattinum og Hagstofunni, að það samræmdist ekki alveg áætlunum 2. gr. frumvarpsins. Ég tel mjög mikilvægt að haft sé um það samráð. En ég tel mig hafa lesið í minnisblaðinu að ekki hafi verið gerðar athugasemdir á fyrri stigum málsins, eins og ég skildi það, þannig að ég veit ekki hvort það hafi verið einhvers konar samráð og það hafi kannski ekki verið nógu mikil samþætting til þess í raun að draga ályktanir um hvort þetta gæti gengið upp eða ekki. Það er auðvitað miður. Það hefði náttúrlega verið best ef við hefðum getað lagt frumvarpið fram í sinni upprunalegu mynd. En hins vegar tel ég, og vona að hv. þingmaður taki undir það með mér, að það sé þó mikilvægt að það sem eftir er af frumvarpinu, sem sagt 1. gr., nái fram að ganga. Ég tel það enn vera til bóta og tel það vera hagræðingu og mikilvægt fyrir þessa stofnun. Ég tel það heldur ekki vera áhættu fyrir sjálfstæði stofnunarinnar, eins og ég hef komið inn á áður.