Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held að það sem við höfum verið að reka okkur aðeins á í þó nokkrum málum, alla vega þeim sem hafa komið inn í þær nefndir sem ég sit í, sé eiginlega tvíþætt. Það er annars vegar það þegar beiðni er kannski ekki send til aðila sem ættu að vera umsagnaraðilar. Í þessu tilfelli var Hagstofan t.d. ekki spurð. Svo er það hitt: Samkvæmt greinargerðinni þá var Skattinum t.d. gert viðvart um málið í samráðsgátt. Og það er kannski hin ástæðan fyrir því að við erum ekki að fá umsagnir, að við erum eflaust að senda Skattinum alveg fullt af umsögnum en hvort þær rata á réttan aðila sem getur svarað, það er alltaf góð spurning. Okkur tókst alla vega að fá rétta aðila til að koma og tala við okkur fyrir nefndinni. En ég er svona meira að hugsa um þetta út frá því að til þess að við séum ekki að gera það sem við þurfum að gera hér, sem er í rauninni að taka stærsta hluta frumvarpsins, taka það út og fella það brott eftir nefndarstarfið, hvernig við getum unnið betur í öðrum málum og þessu máli í framtíðinni. Það væri athyglisvert að heyra hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér að við getum bætt þetta og hvort þingmaðurinn er ekki sammála því að við viljum einmitt bæta það á þann veg að þegar við fáum mál inn þá sé eins mikið af samráðinu og umsögnunum komið og hægt er.