Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar og ég verð eiginlega að taka undir það, þetta leiðir að stærri spurningu um þinglega meðferð og hvernig við vinnum vinnuna okkar. Ég get af öllu hjarta tekið undir það að hin þinglega meðferð og ferlið áður en við fáum mál inn á okkar borð í hinum ýmsu nefndum — það er mikilvægt að það sé vel unnið og að samráð eigi sér stað. Ég held að það sé þannig í mörgum tilfellum en stundum falla hlutirnir kannski á milli skips og bryggju. Það er kannski tvíþætt, eins og þú nefnir; annars vegar er það okkar að kalla eftir réttu umsagnaraðilunum, og hér var Hagstofan vissulega, eins og þingmaðurinn bendir á, hagaðili sem er mikilvægur í þessu samhengi. Það var ekki beðið um umsögn frá þeim. Og hins vegar eru það aðilar eins og t.d. Skatturinn sem fær þá margar beiðnir og hefur kannski ekki getu til að taka eftir öllum boltum sem eru á lofti. Ég tek því þessa málefnalegu gagnrýni til greina og tel hana að mörgu leyti rétta. Ég tek þetta sem hvatningu til að við reynum öll að gera betur, eins og alltaf er hægt að gera.