Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Virðulegur forseti. Hér er merkilegt frumvarp á ferðinni um helstu atvinnugrein þjóðarinnar, grunnatvinnugrein þjóðarinnar, þá atvinnugrein sem framleiðir einar mestu útflutningstekjur í samfélaginu og þar er verðlagning á fiski sem landað er gríðarlega mikilvæg. Hún skiptir mjög miklu máli. Hún skiptir máli fyrir öll hagsmunasamtök sjómanna. Hvað liggur hér á bak við? Jú, þetta er frumvarp frá matvælaráðherra. Og hvað á að gera? Jú, það á að gera það þannig að forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs á að fela forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar — að hann geti jafnframt verið forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs. Og hvort hann eigi að vinna eftir hádegi eða bara á föstudögum eða eftir hádegi á þriðjudögum eða hvenær hann á að sinna þessu starfi, það má guð má vita.
Við erum að tala um atvinnugrein sem er með hundruð milljarða veltu. Útflutningstekjurnar telja hundruð milljarða. Nei, það á að spara. Íslenska ríkið ætlar sér að spara með því að gera starf forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs, einnar mikilvægustu stofnunar sem sér um verðlagningu á sjávarfangi sem landað er, að hlutastarfi. Það á að spara. Ég get tekið umsagnir frá Félagi skipstjórnarmanna, Félagi vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasambandi Íslands, með leyfi forseta:
„Félögin gera alvarlega athugasemd við 1. gr. frumvarpsins, þar sem lögð er til breyting á 2. gr. frumvarpsins um að ráðherra geti falið öðrum forstöðumanni ríkisstofnunar að veita jafnframt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs. Þessu mótmæla félögin.“
Þau vísa til þess hversu mikilvægt það er að Verðlagsstofa skiptaverðs sé sjálfstæð stofnun. Og ég veit að samkvæmt stjórnarskránni ber ráðherra að sjálfsögðu ábyrgð á stjórnarathöfnum öllum. Það stendur í 13. gr. stjórnarskrárinnar. Þetta á að vera sjálfstæð stofnun gagnvart atvinnugreininni, gagnvart útgerðarfyrirtækjum landsins og gagnvart sjómönnum. Laun þeirra miðast við verð á lönduðum afla og þetta er stofnunin sem á að ákveða verð á lönduðum afla.
Ég get tekið frekari dæmi. Það hefur verið fjallað um þetta. Í umsögn sömu félaga, Félags skipstjórnarmanna, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasambands Íslands, frá 23. febrúar síðastliðnum, vísa stéttarfélögin til þess að þau hafi fjallað um málið og rökstyðja það með vísan í bókanir í nýliðnum kjarasamningum um nauðsyn þess að Verðlagsstofa skiptaverðs sé sjálfstæð stofnun. Félögin hafi á fundum með ráðuneytinu ítrekað skoðun sína á málinu, að Verðlagsstofa skiptaverðs yrði sjálfstæð stofnun og þá væntanlega með forstöðumann sem væri í fullu starfi. En nei, það er komið frumvarp hérna.
Ég á sæti í fjárlaganefnd og við vorum með fjárauka út af kjarasamningunum og þar er búið að samþykkja að veita árlega 13 milljarða til þess að kjarasamningar nái fram að ganga. Það á að redda 10 milljörðum frá Landsvirkjun og svo á að fresta nýju örorkukerfi um átta mánuði til að redda öðrum 10 milljörðum til að fjármagna þá kjarasamninga. Þetta mál, Verðlagsstofa skiptaverðs og forstöðumaðurinn, lýtur að sjálfstæði stofnunar sem hefur áhrif á kjarasamninga skipstjórnarmanna og sjómanna. Nei, en það á að spara og fá hálfa stöðu þarna, reyna að spara aðeins.
Svo er annað. Það er algerlega hlægilegt, ég tek það fram, að atvinnuveganefnd skuli detta í hug að taka á móti frumvarpi með þessu ákvæði um að gera forstöðumann Verðlagsstofu skiptaverðs að einhverju hlutastarfi í íhlaupum. Ég veit að þetta er lítil stofnun en mikilvægi stofnunarinnar er gríðarlegt. Sjómenn og útgerðarmenn verða að geta treyst þessari stofnun, treyst á að hún sé sjálfstæð og að hún verðleggi fisk með réttum hætti. Það er grundvallaratriði. En það virðist ekki vera skilningur á því hjá hæstv. matvælaráðherra, svo mikið er víst, hvað þá atvinnuveganefnd.
Svo kemur frumvarpið og ég les hér upp úr greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Það er einkum gert til að styrkja heimildir Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gagnasöfnum Skattsins og Hagstofu Íslands og stuðla þannig að meira gagnsæi fiskverðs og afurðaverðs og styttri málsmeðferðartíma fyrir úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.“
Það sem er verið að reyna að gera með 2. gr., sem er kjarnaákvæði í þessu frumvarpi, er tvennt; að styðja forstöðumann á Verðlagsstofu skiptaverðs og svo stafrænt aðgengi, vegna þess að það er svo mikilvægt að gögnin komi í rauntíma og hægt sé að ákveða verðlag á hverjum tíma sem allra fyrst. Þá er mikilvægt að geta haft þetta í rauntíma. Það hefur greinilega farið fram einhver vinna í ráðuneytinu áður en hæstv. matvælaráðherra leggur fram frumvarpið. Það er farið í vinnuna, undirbúningsvinnuna væntanlega, skrifað frumvarp, þetta plagg hér, sem er lagt fram á Alþingi og í 2. gr. segir, með leyfi forseta:
„Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Jafnframt ber þeim stofnunum sem safna upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem Skattinum og Hagstofu Íslands, að veita Verðlagsstofu skiptaverðs aðgang að þeim upplýsingum með rafrænum eða stafrænum hætti.“
Þetta er sent til Alþingis, mælt fyrir því af hæstv. matvælaráðherra og hún óskar eftir því að þetta stjórnarfrumvarp verði að lögum. Ég hefði haldið að matvælaráðuneytið væri búið að kanna hvort þetta myndi geta gengið af því að þetta á að koma til okkar og við eigum að samþykkja að þetta verði að lögum. Undirbúningurinn ætti væntanlega að fjalla um það. Nei, það er ekki þannig. Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sé mikilvægt að endurskoða þessa grein. Þeir segja ekki að það eigi að fella hana niður. Það er ekki sagt. Þeir segja: Það er mikilvægt að endurskoða hana í ljósi þess að þetta gengur ekki. Auðvitað þarf undirbúningur að eiga sér stað svo að þetta gangi. Það þarf að sjálfsögðu að tengja Verðlagsstofu skiptaverðs við Skattinn og Hagstofu Íslands svo að hún geti fengið rafrænar upplýsingar með stafrænum hætti. Að sjálfsögðu þarf að gera það og það tekur smátíma. Það er augljóst mál. En nei, það á að endurskoða þetta. Það er kjarninn. Og nú kemur meiri hluti atvinnuveganefndar og segir: Nei, heyrðu, við verðum að fella brott þessa grein. Botninn undir þessu frumvarpi er algerlega hruninn. Að sjálfsögðu ber að falla frá þessu frumvarpi, draga það til baka og byrja heimavinnuna upp á nýtt. Ef þetta væri í grunnskóla, ef þetta væri í menntaskóla myndi kennarinn setja rautt í kladdann: Nei, heyrðu, þetta er ekki nógu vel unnið. Farðu heim og lærðu betur heima og komdu svo næsta haust með frumvarp sem getur gengið. Þetta gengur ekki. Þú ert fallinn. Þetta er algjör falleinkunn yfir hæstv. matvælaráðherra og ráðuneyti hennar. Það er alveg klárt mál. Það á líka við um fleiri mál varðandi sjávarútveginn.
Þetta eru svo sorgleg vinnubrögð að maður trúir því ekki, þetta er með ólíkindum. Maður stendur hér í ræðustól á Alþingi Íslendinga, í þingræðisríkinu, og er að tala um svona vinnubrögð. Mér líður eins og ég sé grunnskólakennari í tossabekk þegar ég er að tala til atvinnuveganefndar. Ég get ekki að því gert. Það er alveg klárt mál að svona vinnubrögð ganga ekki, það er algerlega kristaltært. Ástæðan fyrir því að það er verið að gera þetta er til að fá þetta í rauntíma og það er sjálfstæði stofnunarinnar sem skiptir máli.
Það er smávit í 3. gr. vegna þess að þar er verið að leggja til, með leyfi forseta:
„Fulltrúar Félags skipstjórnarmanna, Sjómannasambands Íslands, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi skulu hafa aðgang að álitinu.“ — Áliti Verðlagsstofu skiptaverðs, þeir skulu hafa aðgang að því. — „Ef uppgjör við áhöfn fylgir kjarasamningi um kaup og kjör á smábátum skal Landssamband smábátaeigenda einnig hafa aðgang að álitinu.“
Af hverju er þetta? Jú, þetta er til þess að skapa traust hjá þessum samtökum, traust hjá sjómönnum, á ákvörðun Verðlagsstofu skiptaverðs. Þeir þurfa að fá upplýsingar um þessar ákvarðanir vegna þess að þeir eru að draga verðmæti úr hafinu, þeir eru að afla sjávarfangs á gjöfulustu fiskimiðum heims og þá þurfa þeir að fá þessar upplýsingar til sín og þeir þurfa að geta treyst þeim. Þetta traust liggur í því að það sé sjálfstæð stofnun og að forstöðumaðurinn sinni þessu í fullu starfi. En ríkið ætlar að fara að spara um hvað, hálfa stöðu, gera þetta kannski að 25% stöðu? Það stendur ekkert í frumvarpinu um hversu mikið starfshlutfall þetta á að vera. Ég hef ekki séð það. Ég hef því miður gleymt að spyrja hv. framsögumann nefndarálitsins að því hvað þetta á að vera. 10%, 20%, 30%, hvað ætli sé verið að spara mikið? Ætli það sé verið að spara kannski 400.000 á mánuði í atvinnugrein sem veltir hundruðum milljarða? Það eru til bókanir um þetta í kjarasamningum og ríkið er að fara að setja 13 eða 14 milljarða á ári svo að kjarasamningar nái fram að ganga. En nei, heyrðu, matvælaráðuneytið: Við ætlum að spara hálfa stöðu í Verðlagsstofu skiptaverðs, mikilvægustu stofnuninni. Við ætlum að grafa undan sjálfstæði hennar. Það getur einhver forstöðumaður einhvers staðar, kannski Skattsins, kannski Örnefnastofnunar, eða guð má vita hvar það er, sinnt þessu í íhlaupavinnu, þessari gríðarlega mikilvægu gagnaöflun sem á sér stað svo að hægt sé að verðleggja fisk rétt hjá Verðlagsstofu skiptaverðs. Það er svo grátlegt að þurfa að vera að fjalla um þetta með þessum hætti. Það er bara aumkunarvert að þurfa að standa hérna og vera að tala um þetta raunverulega. Maður trúir þessu varla.
Mig langar að vita það og ég mun væntanlega vera með skriflega fyrirspurn um það hversu margar krónur á að spara á mánuði, hversu margar á ársbasis. Þegar við lítum til kjarasamninga sjómanna þá er íslenska ríkið að setja í þá núna 13 milljarða á ári. Nei, en það á að spara þarna. Og það er alveg klárt mál að það á að draga frumvarpið til baka. Það mætti hafa 3. og 4. gr. áfram til að tryggja að réttir aðilar fái upplýsingar um álitið, fái aðgang að álitinu. Auðvitað eiga þessi álit að vera opinber gögn. Kannski eru þau það, ég hef ekki kynnt mér það nægilega vel. Að sjálfsögðu eiga þetta að vera opinberar upplýsingar, þessi álit. Það er talað um gegnsæi. Það hefur meira að segja verið talað um að hafa gagnsæisákvæði í stjórnarskránni, um það að við getum t.d. fengið að sjá hvernig verðlagið er þarna — klárt gagnsæismál — og traust til að tryggja það að almenningur og skipstjórnarmenn fái upplýsingar með réttum hætti. Nei, það er ekki gert. Og að þingið skuli láta bjóða sér þetta, að það láti bjóða sér svona vinnubrögð. Þetta er bara þjónusta við sérhagsmuni sem eru í matvælaráðuneytinu og ekkert annað.
Ég hefði aldrei trúað því hvernig samfélaginu er stýrt af sérhagsmunum í þessu landi, hvernig er verið að keyra í gegn frumvörp hérna með upplýsingum um að það verði að samþykkja þetta núna í vor, annars muni himinn og jörð farast, hvort sem það er auglýsingaskylda á Búrfellslundi hjá Landsvirkjun eða ekki, sem þarf ekki að auglýsa. Þetta er öryggissvæði þeirra. Þeir eiga þetta svæði. Þeir eru með plön ef það kemur flóð þarna yfir en nei, það má ekki auglýsa það. Við verðum að breyta lögunum. Undirliggjandi þar eru náttúrlega aðrir hagsmunir. Það er óbyggðanefnd. Þeir vilja leggja hana niður um áramótin 1. janúar 2026 en hún verður líklega ekki búin að ljúka störfum þá.
Svo að við snúum okkur aftur að þessu frumvarpi þá skora ég á hv. atvinnuveganefnd að draga frumvarpið til baka og tryggja það að 2. gr. haldi sér í óbreyttri mynd og það verði skorað á matvælaráðuneytið og Skattinn og Hagstofu Íslands að fara í þá vinnu svo að þau geti uppfyllt skilyrði lagaákvæðisins um það að Verðlagsstofa skiptaverðs fái aðgang að þeim upplýsingum sem hún þarf með rafrænum eða stafrænum hætti. Ef þau geta það ekki þá er það bara þannig. Það er ekkert refsiákvæði í þessum lögum. Þau fara ekki í fangelsi eða verða sektuð. En vilji þingsins er skýr og hann birtist í því að upplýsingum um útflutning sjávarafurða, svo sem af Skattinum og Hagstofu Íslands, verði veitt til Verðlagsstofu skiptaverðs með rafrænum hætti. Það er það sem við viljum. Og ef það tekst ekki með rafrænum hætti þá verður það bara gert með öðrum hætti, að sjálfsögðu. Það þarf að sjálfsögðu ekkert að fella þetta niður, fella þetta út úr frumvarpinu. Vilji Alþingis birtist í þeim lagatexta sem Alþingi samþykkir. Þannig er það. Ef þessum aðilum, Skattinum og Hagstofu Íslands, tekst ekki að veita Verðlagsstofu skiptaverðs þessa þjónustu þá er það bara þannig. Þá upplýsa Skatturinn og Hagstofa Íslands Verðlagsstofu skiptaverðs um að það hafi ekki tekist að koma þessari tengingu á. Svo einfalt er það. Himinn og jörð munu ekki farast, svo mikið er víst.
Mann fer að gruna það í málum sem maður er að sjá hérna, t.d. eins og með greiðslumiðlunina, að það séu aðrir hagsmunir undir. Ég veit það ekki, ég ætla ekki að fullyrða neitt, ég læt þá alla vega njóta vafans en maður fer að hugsa að það sé eitthvað annað á bak við, svo að það sé algjörlega á hreinu. Og þetta með að fela forstöðumanni annarrar ríkisstofnunar jafnframt forstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs og að það sé mikilvægt mál að það verði þannig: Hvað mun gerast ef það verður áfram forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs í fullu starfi sem getur sinnt þessu mikilvæga starfi í fullu starfi og helgað sig því starfi en er ekki að gera þetta í aukastarfi, kannski 20% eða 25% vinnu? Einstaklingur sem er í hlutastarfi, hann er að hugsa um tvo hluti í einu. Hann er með tvöfalda ábyrgð. Það er grundvallaratriði að yfirmaður þessarar litlu stofnunar, sem nauðsynlegt er að hafi algjört sjálfstæði, sé í fullu starfi, algjörlega óháður öðrum hagsmunum, óháður öðrum stofnunum.
Það er alveg rétt sem segir í umsögn Félags skipstjórnarmanna, Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannasambands Íslands, með leyfi forseta:
„Við höfum fullan skilning á því að ekki er skynsamlegt út frá rekstrarlegum forsendum að hafa sérstaka stofnun með einungis fjórum starfsmönnum.“
Það getur vel verið. Ríkisendurskoðun er búin að segja það. En við búum í litlu landi. Það er einn héraðsdómari í Héraðsdómi Vestfjarða. Það er sýslumaður fyrir vestan. Þetta eru mikilvægar stofnanir á Vestfjörðum. Fjögurra manna stofnun er mikilvæg stofnun líka. Hún tekur mikilvægar ákvarðanir. Það er það sem skiptir máli. Það þarf ekki 50 manna stofnun til að ákveða fiskverð í landinu. Það þarf fjóra einstaklinga til þess og það þarf sérstaka sjálfstæða stofnun. Þannig er það. Embætti forseta Íslands er embætti með einum einstaklingi. Ætli Ríkisendurskoðun geti gert athugasemd við það? Jú, það eru náttúrlega einhverjir aðstoðarmenn líka en það breytir því ekki að við erum með embætti sem eru lítil. Og er það ekki bara allt í lagi? Þetta er orðin einhver fóbía fyrir því að það séu litlar stofnanir í landinu. Þessi stofnun gegnir mjög mikilvægu hlutverki og það er mikilvægt að hún sé sjálfstæð.
Það segir í umræddri umsögn, með leyfi forseta:
„Það breytir því ekki að vegna sérstöðu verkefna Verðlagsstofu er nauðsynlegt að hún sé algerlega sjálfstæð.
Félögin leggja til að 2. gr. laganna verði óbreytt.“
Það er vegna þess að það hefur tekið allt of langan tíma að fá niðurstöðu í ágreiningsmálum og öðrum málum sem lúta að ákvörðun Verðlagsstofu skiptaverðs. Það er verið að reyna að hraða upplýsingagjöfinni með þessum hætti. Ef það tekst ekki þá er það bara þannig. En það þarf að fara að endurskoða það. Af hverju endurskoða þeir þetta ekki bara í nefndinni? Það er ekkert flókið að endurskoða þrjár línur. Það er ekkert flókið. Hvað er það sem þarf að endurskoða? Að sjálfsögðu er mikilvægt að koma á rafrænu sambandi þegar hægt er, eins og hæstv. matvælaráðherra ætlaði sér í upphafi, annars væri hann væntanlega ekki að leggja fram frumvarpið. En hann hefur greinilega ekki gert heimavinnuna. Það er alveg augljóst mál. Í tossabekknum er það þannig að menn gera ekki heimavinnuna og svo er farið að kanna málið: Nei, það stendur ekki steinn yfir steini. Þá er það bara þannig að þessar stofnanir einhenda sér í þá vinnu að koma á þessu rafræna sambandi þannig að starfsmenn Verðlagsstofu skiptaverðs og forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs, í fullu starfi, sem helgar sig því starfi að verðleggja sjávarafurðir í landinu, „full time“ eins og menn segja, séu ánægðir og geti sinnt sínu starfi fullkomlega. Þetta er svo mikilvægt fyrir kjarasamninga sjómanna. Þeir eru með sérstaka bókun í nýgerðum kjarasamningum um nauðsyn þess að Verðlagsstofa skiptaverðs sé sjálfstæð.
Það liggur við að það verði að taka það upp í fjárlaganefnd að sjá til þess að skaffaður sé peningur, þessir hundraðþúsundkallar aukalega, svo að við séum örugglega með sjálfstæðan forstöðumann í fullu starfi hjá Verðlagsstofu skiptaverðs. Við erum að tala um 13 milljarða á ári. Meira að segja ríkisstjórnin, fjármálaráðherra, hefur ekki einu sinni skapað tekjugrundvöll fyrir því. (Forseti hringir.) Svo erum við að tala um algjört smámál hérna og það er engin furða að hv. framsögumaður málsins sé farinn í fýlu, farinn ofan í holu. Það er nákvæmlega það sama og með greiðslumiðlunina. (Forseti hringir.) Þeir bara hurfu.
Það er svo merkilegt í þessu líka að framsögumenn í þessum málum sem eru vafasamir, þar sem virðast vera sérhagsmunir að baki, (Forseti hringir.) þeir koma alltaf frá VG. Það er alveg merkilegt. Fjármálageirinn, greiðslumiðlunin og svo þetta. (Forseti hringir.) Saklausir sósíalistar, róttækur femínískur sósíalistaflokkur sem vill betri heim, sendiboðinn er alltaf frá þeim. (Forseti hringir.) En yndislegt. Blekkingin gæti ekki verið fallegri raunverulega. Þetta er alveg grátlegt.
(Forseti (AIJ): Forseti minnir hv. þingmann á að ræðutími í 2. umræðu um frumvörp er takmarkaður við 20 mínútur en það er hægt að biðja um fleiri ræður ef mönnum liggur mikið á hjarta.)