Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og velti fyrir mér hvort ekki væri hægt — eins alvarlegt og málið er og stórt, sem liggur þarna á bak við, þeir rosalega mörgu milljarðar sem hv. þingmaður minnist á, hagsmunirnir eru vissulega stórir og miklir — að gera þetta á einfaldari hátt með því einfaldlega að leggja Verðlagsstofu skiptaverðs niður og láta tölvu reikna út meðalverð á markaðsvirði sem er til, er mjög aðgengilegt. Einhverra hluta vegna, miðað við þau gögn sem maður hefur séð, nýjustu gögn sem maður sér hvað það varðar, sleppa þeir sem eru undir ákvörðunum Verðlagsstofu skiptaverðs alltaf við ansi mikinn pening, þ.e. verðin sem Verðlagsstofa skiptaverðs ákvarðar eru bara umtalsvert lægri en markaðsverð. Ég skil ekki af hverju, ég sé enga ástæðu til þess. Þetta væri í raun ein leið til þess að koma öllum afla beint á markað. Þó að hann færi innan þessarar lóðréttu samþjöppunar sem er í gangi, og Verðlagsstofa skiptaverðs nær til, þá er leið til þess að koma markaðsverði á þann afla, einmitt bara með því t.d. að nota ákveðið hlaupandi gengi á markaðsverði. Fólk þekkir þessi markaðsverð mjög vel á milli árstíða og þess háttar. Og ég skil ekki af hverju það þarf einhverja stofnun eða einhvern forstöðumann til að bera ábyrgð á því að hafa verðið til þeirra sem eru með lóðrétta samþættingu lægra en markaðsverð.