154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[17:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, það þarf ekki fjóra starfsmenn í það og það þarf ekki að búa til eitthvert svoleiðis forrit. Á mörkuðum eru verðin mjög aðgengileg. Þetta eru einfaldar tölur og breytingar yfir tíma sem hundruð forrita vinna með í kauphöllum og alls konar svoleiðis. Þetta er mjög einföld tala í rauninni sem myndi bætast við svoleiðis línurit sem slík. Það þarf ekki að vera flóknara en það að bæta við einhverri samsettri tölu í kringum heimsmarkaðsverð á helstu mörkuðum sem selt er til; hvort sem það er íslenskur fiskur eða ekki, það á ekki að skipta það miklu máli, það eru ekki það mikil frávik í heildina að það muni breyta einhverju.

Varðandi arðsemina innan samstæðu þá breytir það í raun næstum því engu að geta flutt hagnaðinn frá útgerðinni til vinnslunnar. Málið er bara að það er verið að færa hagnaðinn. Það þýðir að útgerðin kemur verr út sem þýðir að minna veiðigjald er greitt og í rauninni er þar búinn til aukaarður þar sem samstæðan sleppur við að borga mismuninn sem væri í veiðigjaldi miðað við arðsemi útgerðarinnar. Það er í raun ákveðið skattsvindl en það er löglegt ... skattsvindl af því að það er stimplað af Verðlagsstofu skiptaverðs. Þess vegna þarf einfaldlega að stroka þessa stofnun út af kortinu. Það þarf að setja þessa samræmdu tölu, miðað við þá markaði sem við verslum við með fisk. Nota það verð til að skella á alla þessa innri verslun innan samstæðna með fisk á Íslandi. Það er í rauninni ekkert flóknara en það þegar allt kemur til alls.