154. löggjafarþing — 123. fundur,  14. júní 2024.

Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

847. mál
[17:20]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Einfalt að gera þetta, segir hann. Það er eflaust hægt að gera þetta, en það breytir því ekki að það þarf sérstaka stofnun til að halda utan um þetta forrit. Það væri alveg verðugt markmið. En það er klárt mál að svona forrit þarf að hafa rafrænan og stafrænan aðgang að upplýsingum frá Skattinum út af útflutningsverðmæti og líka frá Hagstofu Íslands; við þurfum að fá upplýsingar um útflutning sjávarafurða. Það verður að vera þannig. Við verðum að vita hversu hátt verðið er úti í heimi svo að Verðlagsstofa skiptaverðs geti ákveðið það.

Mig langar að lesa hér 1. gr. laga um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Nafnið sýnir vel að um er að ræða sjómenn og útvegsmenn, en nú á sem sagt að gera þetta að hlutastarfi. Í 1. mgr. 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Hlutverk Verðlagsstofu skiptaverðs er að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut sjómanna eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.“

Í 2. mgr. 1. gr. segir:

„Hafi samtök útvegsmanna og sjómanna gert með sér samkomulag um tiltekin markmið um viðmið varðandi verðlagningu á fiski við uppgjör á aflahlut sjómanna á gildistíma kjarasamnings eða ákvarðanir um slíkt hafa verið teknar með öðrum skuldbindandi hætti skulu Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna […] stuðla að því með störfum sínum og úrskurðum að þau markmið nái fram að ganga.“

Þetta er beintengt við kjarasamninga sjómanna. Það eru bókanir um það í kjarasamningum sjómanna að þetta verði sjálfstæð stofnun. Nei, það er ekki virt, það er komið fram frumvarp um að þetta eigi ekki að vera sjálfstæð stofnun og það eigi að vera eitthvert hlutastarf hjá einhverjum forstöðumanni einhvers staðar — ég veit ekki hvar það ætti að vera, á Þjóðminjasafni Íslands eða einhvers staðar — sem á að taka þetta starf að sér; kannski hjá Reiknistofu bankanna. Vissulega má rafvæða þetta en fyrsta skrefið er klárlega að koma á rafrænu sambandi með stafrænum hætti við Hagstofu Íslands og Skattinn, forritið getur komið seinna.