heimavitjun ljósmæðra.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu. Við erum auðvitað enn og aftur á sömu nótum þegar kemur að jafnréttinu í orlofi og ekki síst þegar snýr að meðgöngu. Ég hef ekki sett mig alveg nákvæmlega inn í þau mál, hvernig þau standa akkúrat gagnvart þessu máli sem hv. þingmaður vísar til og Samfylkingin er með til umfjöllunar í velferðarnefnd, en rétt að skoða það í þessu samhengi. Hið fyrra mál, varðandi heimavitjun og ljósmæður, þá hygg ég að hv. þingmaður hafi verið með athugasemdir við stuðning heima við á meðgöngu sem við höfum brugðist við. En ég þarf, eins og ég kom inn á í fyrra andsvari, að kanna betur hvað það er sem við kláruðum og hvað hefur ekki gengið eftir. En ég skal sannarlega skoða jafnréttisvinkillinn á því máli sem hv. þingmaður varpar hér fram.