154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

orkuskipti og bann við nýskráningu bensín- og dísilbifreiða.

[13:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er varðar kynningu ráðherrans og fleiri ráðherra síðastliðinn föstudag á 150 áhersluatriðum varðandi loftslagsmál. Mig langar að taka eitt þessara atriða sérstaklega út. Það voru sagðar fréttir af því að nýskráning bensín- og dísilbifreiða yrði óheimil árið 2028. Ég hef heyrt í allnokkrum úr bílgreininni síðan þessi kynning fór í loftið og þar rak menn að því er virðist heilt yfir í rogastans. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig þetta passi við þróun þessara mála í nágrannalöndum okkar, markmið Evrópusambandsins og hvort við hér á Íslandi höfum eitthvert tæknilegt forskot sem geri það raunhæft að þetta sé skynsamleg nálgun umfram þær þjóðir sem m.a. framleiða bíla sem ekki eru knúnir bensíni eða dísilolíu, og ef hæstv. ráðherra hefur tíma væri áhugavert ef ráðherrann segði nokkur orð um það hvernig þessi íþyngjandi nálgun passar við frelsishugsjónir Sjálfstæðisflokksins.