orkuskipti og bann við nýskráningu bensín- og dísilbifreiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og mjög gott að hún komi hér fram vegna þess að hér er ákveðinn misskilningur á ferðinni. Það er ekki lagt til að þetta verði óheimilt 2028. Þó svo að þetta sé allt saman í samráði og við viljum fá viðbrögð þá gengur í rauninni tillagan út á að það sé skoðað hvaða afleiðingar það hefði ef menn myndu flýta banninu 2030 til 2028. Það er mjög gott að hv. þingmaður skyldi koma með fyrirspurnina svo hægt sé að leiðrétta það. Hins vegar erum við Íslendingar væntanlega í betri færum en flestir nema kannski Norðmenn þegar kemur að orkuskiptum í bílum. Það er mikil aukning á rafbílum í heiminum en margar þjóðir eiga samt við þann vanda að etja að vera ekki með græna endurnýjanlega orku til að búa til rafmagn. Það heyrir til undantekninga ef við búum til rafmagn sem er ekki hreint. Undantekningin er aðallega á Vestfjörðum, en þaðan berast nú mjög jákvæðar fregnir sem ég veit að hv. þingmaður hlýtur að gleðjast yfir. Jarðhitaleitarátakið sem við fórum í er sannarlega að skila árangri, ekki síst í Skutulsfirði, sömuleiðis á Reykjanesi og Selfossi og á fleiri svæðum.
Varðandi þá aðgerðaáætlun sem þarna er kynnt þá er hún núna í samráði í tvo mánuði og ég hvet alla til að kynna sér hana. Hún kemur ekki úr neinu, þetta er búið að vera tveggja ára ferli þar sem við höfum verið að vinna með atvinnulífinu til þess að koma fram með hugmyndir sem eru raunhæfar því að við þurfum að vera raunhæf í þessu og taka á öllum þáttum. Eins og ég nefndi er þetta tveggja mánaða samráð en í ofanálag er búin að vera gríðarlega mikil vinna sem á sér enga hliðstæðu með atvinnulífinu áður en drögin eru kynnt.