154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

orkuskipti og bann við nýskráningu bensín- og dísilbifreiða.

[13:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Kynningunni hefur þá væntanlega verið um að kenna og framsetningunni að býsna margir virðast hafa misskilið það að þarna væri um að ræða fortakslaust bann miðað við árið 2028. Þá hlýtur maður að spyrja sig: Hvert er hlutfall þessara 150 punkta sem þarna voru kynntir þar sem á að velta vöngum og hvert er hlutfall konkret aðgerða og ákvarðana sem búið er að taka ákvörðun um að ganga til? Og ef ráðherra gefst tækifæri til út frá tímarammanum: Hefur almennt verið ánægja hjá öllum hagaðilum með samráðið sem þarna átti sér stað?