orkuskipti og bann við nýskráningu bensín- og dísilbifreiða.
Virðulegur forseti. Almenna reglan í þessu er — og það er aðgerðaáætlun sem er í gangi sem er með 50 aðgerðir. Þetta eru mun nákvæmara plagg en þetta eru ekki ákvarðanir. Þetta er í samráði í tvo mánuði. (BergÓ: Og það er búið.) Nei, þetta var … (BergÓ: … jú, fyrirgefðu …) Það var sett í samráð núna í tvo mánuði þannig að samráðið er enn í gangi. Það verður lokað fyrir samráð, ef ég man rétt, 18. ágúst. Það er búið að vinna með öllum þeim hagsmunaaðilum sem menn hafa getað en í ofanálag eru tillögurnar settar fram og svo er samráð í tvo mánuði og svo taka menn aftur upp að fara yfir málin. Af því að hv. þingmaður talaði um sjónarmið um boð og bönn þá er ég ekki fylgjandi þeim en hins vegar er mjög mikilvægt að við gerum eins og foreldrar okkar og afar okkar og ömmur gerðu, (Forseti hringir.) að fara yfir í græna orku. Það var samstaða þjóðarinnar (Forseti hringir.) sem gerði það að verkum og ég og hv. þingmaður þekkjum það vel og við sjáum ekki eftir því að hafa farið í (Forseti hringir.) heita vatnið, hv. þm. Bergþór Ólason.