154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

brottvísun hælisleitenda sem sekir eru um alvarlega glæpi.

[13:47]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í eldhúsdagsumræðum í síðustu viku sagði hæstv. dómsmálaráðherra að hún hygðist leggja fram frumvarp um að heimilt yrði að víkja úr landi hælisleitendum sem gerast sekir um alvarlega glæpi. Því vakti það furðu þegar hæstv. dómsmálaráðherra greiddi atkvæði gegn breytingartillögu Flokks fólksins um nákvæmlega þetta, þ.e. að bæta við lög um útlendinga ákvæði sem heimilar brottvísun hælisleitenda sem gerast sekir um alvarlega glæpi. Hæstv. ráðherra sagði í atkvæðaskýringu að hún gæti ekki stutt breytingartillögu okkar í Flokki fólksins vegna lagatæknilegra ástæðna. Ég gef lítið fyrir þá skýringu enda var breytingartillaga okkar byggð á flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1951, dönsku útlendingalögunum og gömlu íslensku útlendingalögunum frá 2002 með breytingum frá 2010, nákvæmlega sama ákvæði í 45. gr. Ég býst því við að raunverulegar ástæður að baki atkvæði hæstv. dómsmálaráðherra hafi verið að hún gat ekki greitt atkvæði með breytingartillögu sem kom frá stjórnarandstöðunni. Er það ekki svo?