154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

brottvísun hælisleitenda sem sekir eru um alvarlega glæpi.

[13:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir þessa fyrirspurn. Ef hv. þingmaður man atkvæðaskýringu mína við útlendingalögin síðastliðinn föstudag þá man hann væntanlega eftir því að ég þakkaði Flokki fólksins fyrir að hafa komið fram með þessa breytingartillögu en á sama tíma tók ég skýrt fram að það voru lagatæknilegir örðugleikar við þá tillögu sem hér var lögð fram af hv. þingmanni þannig að hún var ótæk. Það hef ég eftir ráðgjöfum mínum í ráðuneytinu, eftir að hafa rætt við þá. Hins vegar sagði ég í ræðu minni hér á eldhúsdegi að ég hygðist leggja fram frumvarp í haust þar sem fólk sem gerist sekt um alvarlega glæpi myndi missa leyfi til dvalar hér á landi og ég hef það enn í huga og vænti góðs samstarfs frá hv. þingmanni og Flokki fólksins þegar það kemur fram næsta haust.