brottvísun hælisleitenda sem sekir eru um alvarlega glæpi.
Virðulegur forseti. Ég er meira að segja með brot úr ræðu hennar. Þar segir, með leyfi forseta:
„Breytingartillaga þessi nær því miður ekki þeim markmiðum sem hún á að ná af lagatæknilegum ástæðum. Breytingartillaga Flokks fólksins tekur í engu tilliti til afturköllunar alþjóðlegrar verndar en það er grundvallaratriði í þessu samhengi.“
Ég vil bara minna hæstv. dómsmálaráðherra á það að ákvæðið sem við vorum að leggja fram er sérregla út frá 42. gr. útlendingalaga sem er bann við því að vísa fólki úr landi. Sú regla, 42. gr. laganna, er sérregla út frá 99. gr. laganna þar sem segir, með leyfi forseta: „Heimilt er að vísa útlendingi úr landi sem hefur dvalarleyfi ef“ — og svo er talið, a, b, c, d, og svo kemur 42. gr. sem bannar og þetta á að vera sérregla. Þetta er sérregla sem byggist á því að 2. mgr. 33. gr. laga um flóttamannasamninginn, ef þú hefur framið alvarlegan glæp, ef þú ert stríðsglæpamaður og fleiri atriði — (Forseti hringir.) það er bara grundvallaratriði að svona einstaklingar eiga ekki að vera í landinu. (Forseti hringir.) Ég hafna þessu algjörlega, þessi fyrirsláttur um að það séu alltaf lagatæknileg atriði bara á ekki við, (Forseti hringir.) ekki frekar en þegar við vorum með breytingartillögu um Venesúelabúana.