154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

brottvísun hælisleitenda sem sekir eru um alvarlega glæpi.

[13:51]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari spurningu til mín. Ég tek undir það að þessi tillaga gekk ekki upp vegna lagatæknilegra breytinga og annars sem þurfti til. Ég vil líka leggja áherslu á að það að afturkalla vernd er heilmikið mál og það ber að vanda mjög til verka í aðgerð sem slíkri. Ég vil einnig benda hv. þingmanni á það að breytingartillaga sem felur í sér jafn umfangsmikinn verknað og það er að afturkalla vernd þarf að fara hér til þingsins og allsherjar- og menntamálanefnd þarf að fjalla um hana. Það er því mitt álit að við þurfum að vanda mjög til verka. (Forseti hringir.) Þess vegna mun ég leggja þetta fram í haust (Forseti hringir.) og málið verður í meðförum þingsins.