kolefnisföngun og mengun hafsins.
Forseti. Í Kastljósi í desember síðastliðnum sagði hæstv. ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, með leyfi forseta:
Það sem menn kannski átta sig ekki á er að við Íslendingar erum núna komin með lausnir þegar kemur að kolefnisföngun bara hér á stað sem við öll þekkjum, Akranesi. Þar er t.d. stærsta varanlega kolefnisföngunarverkefni í heimi, Running Tide.
Þó átti ráðherra að vita að þetta var ekki sönn fullyrðing enda hafði Umhverfisstofnun tilkynnt ráðherra að stofnunin hefði ekki lagaheimild til þess að hafa eftirlit með starfsemi fyrirtækisins, starfsemi sem teldist ekki aðeins varp í hafið heldur næði hún langt út fyrir rannsóknarleyfið sem Running Tide hefði tryggt sér. Sitjandi umhverfisráðherra í málinu, Bjarni Benediktsson, gekk þá í málið og komst að því þann 25. apríl 2023 að Umhverfisstofnun hefði rangt fyrir sér, þetta væri bara alls ekki varp í hafið. Formaður Sjálfstæðisflokksins mætti og vængstýfði eftirlitsstofnanir vegna þess að ráðherrar flokksins hrifust af glansmyndinni sem dregin var upp af forsvarsmönnum fyrirtækisins. Hér er ég búinn að telja upp tvo ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem tengjast þessari mengunarsögu beint en þeir eru fleiri úr þeim flokki ásamt fyrrum matvælaráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, sem komu að málinu. Í morgun birti Heimildin viðtal við hæstv. umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra þar sem hann svaraði því á hverju fullyrðingar hans um stórfenglegan umhverfisárangur verkefnisins væru byggðar, með leyfi forseta: Ég fékk þær bara frá forsvarsmönnum fyrirtækisins.
Er það almennt verklag hjá hæstv. ráðherra að treysta frekar á uppblásna söluræðu frá fyrirtækjum heldur en niðurstöðum eigin undirstofnana? Er þá á annað borð hægt að treysta ráðherra sem fer með málaflokk bæði umhverfis og loftslags (Forseti hringir.) sem kallar það að menga hafið okkar, með leyfi forseta, stærsta kolefnisföngunarverkefni í heiminum?