154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

kolefnisföngun og mengun hafsins.

[13:55]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina en hann fer nokkuð frjálslega með hér og blandar ýmsu saman og veit auðvitað miklu betur. Það að láta að því liggja að formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra hafi einhvern veginn bara upp á sitt eigið einsdæmi gert einhverja hluti — þetta er eitthvað sem hv. þingmaður á að gera betur. Það er mjög mikilvægt að við höfum gott reglugerðarumhverfi fyrir okkar atvinnustarfsemi og af því að hv. þingmaður, þó að það sé erfitt að fara í gegnum þetta, ég vona að ég fái betra tækifæri til að ræða þetta við hann hér í þingsal, vísar til þess um hvað málið snerist í upphaflega þá snerist það um lagabálk sem heitir verndun hafs og stranda. Það vill nú svo til, virðulegur forseti, að ég þekki það mál ágætlega vegna þess að ég var í umhverfisnefnd þingsins þegar þetta var gert að lögum á sínum tíma, ef ég man rétt, 2003 eða 2004. Og talandi um varp í hafið þá var það alveg skýrt að menn voru að koma í veg fyrir hluti sem verið var að gera og voru of algengir þá, sem sneru að því að taka t.d. bílhræ og annað slíkt þegar menn sigldu yfir heimsins höf og henda þeim í hafið. Það hafði ekkert að gera með starfsemina sem hér er um að ræða. Það er í stefnuskjali ríkisstjórnarinnar að við leggjum á það áherslu að hér geti starfað fyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki á sviði loftslagsmála. Ef hv. þingmaður vill fara yfir það þá ætti hann að fara yfir Vaxa og Carbfix og ýmislegt annað sem eru að gera hluti sem hljóma mjög nýstárlega af því þeir eru nýstárlegir. En ef menn ætla ekki að fikra sig áfram í nýsköpun í föngun í loftslagsmálum, og það er verkefni sem í það minnsta ég hélt að hv. þingmaður hugsaði mikið um, loftslagsmálin, (Forseti hringir.) þá er erfitt ef ekki vonlaust að ná því fram.