154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

kolefnisföngun og mengun hafsins.

[13:57]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Allar dagsetningar sem ég nefndi hafa komið fram opinberlega og ég fór ekki frjálslega með neinar staðreyndir en eins og svo oft fæ ég ekki svar við spurningum mínum frá hæstv. ráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ég vil því árétta, í fyrsta lagi: Er þetta almennt verklag hjá hæstv. ráðherra, að treysta á uppblásna söluræðu frá fyrirtækjum frekar en niðurstöður eigin stofnana?

Í öðru lagi: Af hverju virti hæstv. ráðherra athugasemdir Umhverfisstofnunar og Hafrannsóknastofnunar að vettugi?

Í þriðja lagi: Fyrst ráðherra nefnir önnur fyrirtæki sem eru í kolefnisföngun, telur ráðherra að þetta mál geti skaðað orðspor Íslands, hæstv. ráðherra og annarra kolefnisföngunarverkefna á Íslandi?