kolefnisföngun og mengun hafsins.
Virðulegi forseti. Það skiptir ekki máli hversu oft hv. þingmaður kemur fram með þessa fyrirspurn þar sem hann er að bera saman epli og appelsínur og biðja mig að svara hlutum sem tengjast ekki.
Aðeins hins vegar út af kolefnisföngun: Hver er stærsta kolefnisföngun sem við erum í? Hvað er það? Hv. þingmaður ætti að þekkja það. Það er skógrækt og landgræðsla.
Nú er það þannig, virðulegi forseti — af því að menn eru hér að tala um að sérfræðingar og vísindamenn séu ekki sammála um það — að það hafa komið fram ásakanir um það í virtum fræðiritum að við séum ekki að fanga með skógrækt.
Hv. þingmaður spyr hvort þetta hafi skaðleg áhrif. Umræðunni um þessa tækni, gamla og nýja, er ekki lokið og henni mun ekki ljúka, vonandi ekki. Það liggur alveg fyrir að bæði sérfræðingar og vísindamenn hafa mismunandi sjónarmið á því. En ef við ætlum ekki að gera neitt bara vegna þess að það væri hugsanlega hægt að gera einhver mistök þá er það, held ég, ákvörðun sem er ekki góð. Reyndar höfum við Íslendingar góða reynslu af því á sviði loftslagsmála, (Forseti hringir.) þótt við köllum það ekki loftslagsmál, að fara leiðir sem aðrir fóru ekki. (Forseti hringir.) Ég gæti t.d. vísað hér til hitaveituvæðingar.