frestun afgreiðslu samgönguáætlunar.
Virðulegi forseti. Samgönguáætlun er eða var eitt allra stærsta verkefni þingsins í ár. Hún varðar framkvæmdir til næstu 15 ára og fjárfestingu fyrir rúma 900 milljarða. Mikil vinna hefur farið í þetta mikilvæga innviðamál. Umhverfis- og samgöngunefnd hefur verið að vinna að þessu máli sleitulaust síðan í október. Um 70 aðilar hafa lagt fram umsagnir við málið. Nefndin hefur fundað með sveitarfélögum og mörgum öðrum hagaðilum. Allar samgöngur landsins, hafnir, vegir og göng, eru þarna undir. Þetta er þýðingarmikið samgöngu- og innviðamál, öryggis- og byggðamál. Þáverandi innviðaráðherra, sem hér situr nú sem núverandi fjármálaráðherra, lagði fram samgönguáætlun. Hann lagði síðan reyndar líka fram fjármálaáætlun. En hvað gerðist svo á föstudagskvöld? Meiri hlutinn boðaði í skyndi til fundar í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem tilkynnt var að samgönguáætlun yrði ekki afgreidd fyrir sumarið, allri vinnunni yrði kastað í ruslið.
Verði samgönguáætlun lögð fram aftur í haust þýðir það að það þarf að fara í alla vinnuna aftur, óska eftir öllum umsögnum aftur, funda með öllum hagaðilum aftur — sturluð tímasóun og kostnaður af svona vinnulagi. Virðingin fyrir verkefni sem varðar þessa mikilvægu innviði og samgöngur var ekki meiri en svo að allri vinnunni var sturtað niður til þess eins að halda friðinn í ríkisstjórnarsamstarfinu. En rök ríkisstjórnarinnar fyrir þessari slátrun eru að þeirra eigin sögn misræmi milli samgönguáætlunar og þess fjármagns sem ætlað er í verkefnið. Misræminu er lýst sem óviðunandi ástandi en hvar liggur misræmið nákvæmlega? Er þetta misræmi milli samgönguáætlunar Sigurðar Inga og fjármálaáætlunar Sigurðar Inga? Liggur misræmið einhvers staðar á mörkum fyrrverandi innviðaráðherra og núverandi fjármálaráðherra? (Forseti hringir.) Erum við ekki alveg örugglega á því að þetta sé einn og sami maðurinn?