154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

frestun afgreiðslu samgönguáætlunar.

[14:04]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að staðfesta það að hér talar einn og sami maðurinn, sami maður sem lagði fram samgönguáætlun og fjármálaáætlun sem ganga að manni sýnist innbyrðis ekki upp, að hér sé einn og sami maðurinn sem hafi framleitt bæði skjöl. Ég get ekki skilið orð hans öðruvísi en svo að hann sé þá óánægður með formann umhverfis- og samgöngunefndar, hann hafi ekki haldið nægilega þétt utan um þetta mál fyrst hann kvartar undan þunga nefndarinnar við vinnu á þessu máli.

Mér finnst sérstakt að heyra hæstv. fjármálaráðherra og fyrrverandi innviðaráðherra tala með þeim hætti, það er ekki hægt að skilja það neitt öðruvísi, að hans eigin samgönguáætlun hafi ekki haft neina efnislega þýðingu, það sé ekkert í húfi, eins og hann orðar það sjálfur. Það eru stór orð þegar við erum að tala um alla samgönguinnviði landsins til 15 ára. Potturinn þar undir er 900 milljarðar og fjármálaráðherra, glænýr í embætti, talar um þessar framkvæmdir (Forseti hringir.) í þágu samgangna landsins sem þætti sem engu máli skipta og að hér sé ekkert í húfi. (Forseti hringir.) Það er sérstakt og þá er kannski skiljanlegt að þessu hafi öllu verið kastað í ruslið.