154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

frestun afgreiðslu samgönguáætlunar.

[14:06]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég heyri að hv. þingmaður heldur áfram að nota hástemmd, gildishlaðin lýsingarorð og túlka orð mín. Ég sagði einfaldlega að núgildandi samgönguáætlun er í gildi og verkefni samkvæmt henni eru fjármögnuð og það mun ekkert trufla þau þó að málið komi að nýju til kasta þingsins í haust. Það er hins vegar þannig að endurskoðun hefur staðið yfir á gríðarlega stóru verkefni, samgöngusáttmálanum, sem liggur ekki fyrir en mun liggja fyrir á næstu vikum. Því miður hittist tímalínan ekki nákvæmlega á. Við fórum of seint af stað með verkefnastofu um orkuskipti og fjármögnun annarra verkefna. Þar erum við svona í miðri á og línur geta skýrst aftur í haust og þar með hjálpað til við afgreiðslu samgönguáætlunar. Fjármálaáætlun er algerlega í takt við samgönguáætlun en ég skil vel óskir þeirra sem eru í samgönguverkefnum og allra þeirra sem bíða eftir framkvæmdum að fá meira fé. Við erum hins vegar þannig stödd í hagsveiflunni að það er (Forseti hringir.) skynsamlegt að slá aðeins á væntingar í augnablikinu. Það gerir það hins vegar ekki að verkum að ekki sé hægt að klára samgönguáætlun í haust (Forseti hringir.) og það gerir það heldur ekki að verkum að ekki sé hægt að halda áfram þeim verkefnum sem eru í gangi í dag.