154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

niðurgreiðsla tæknifrjóvgunar- og ófrjósemisaðgerð.

[14:07]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Fæðingartíðni hefur aldrei verið jafn lág á Íslandi. Þetta er alvarleg staðreynd fyrir samfélagið og er eitthvað sem við þurfum að íhuga og gera það sem við getum til að sporna við þessari þróun. Við höfum eitt tæki til að aðstoða við einn anga þess máls sem kallast tæknifrjóvganir ýmiss konar, en fyrir utan að vera mjög erfitt og íþyngjandi ferli fyrir það fólk sem þarf að leita sér þessarar aðstoðar er það mjög kostnaðarsamt ferli. Í nýlegri rannsókn sem staðfestir þessa lægstu fæðingartíðni Íslands kemur líka fram að fæðingartíðni þeirra sem hafa lægri tekjur sé að minnka umfram þau sem hærri hafa tekjurnar. Þetta er sanngirnismál fyrir alla hópa en hér verðum við sérstaklega að staldra við. Ég vil því í mestu vinsemd fá að nefna við hæstv. ráðherra að ég lagði fram frumvarp í haust sem leggur til mikinn aukinn stuðning í þá niðurgreiðslu sem stendur fólki til boða í þessum sporum. Í stuttu máli fjallar frumvarp mitt um að kostnaður af þessum þremur meðferðum sem eru þar í boði fari úr tæpum 1,5 milljónum í rúmlega 300.000 kr. þar sem t.d. fyrsta meðferðin fer úr 5% niðurgreiðslu í 75% niðurgreiðslu.

Á verðbólgutímum verður að sjálfsögðu að hægja á útgjaldavexti og það er eitthvað sem við þurfum öll að hafa augun á og ég er talsmaður þess að hið opinbera geti forgangsraðað kannski örlítið betur oft og þetta sé eitt af því. En ég bendi einnig á að hið opinbera er að niðurgreiða að fullu valkvæðar ófrjósemisaðgerðir sem í daglegu tali eru oft kallaðar herraklippingar og ég hef ekkert á móti slíkum aðgerðum (Forseti hringir.) og sjálfsögðum rétti fólks til að fara í slíkar aðgerðir, en er ekki eitthvað rangt við það að hið opinbera niðurgreiði þær aðgerðir að fullu en aðstoði ekki meira (Forseti hringir.) í niðurgreiðslu til fólks sem þarf aðstoð við að eignast börn? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)