niðurgreiðsla tæknifrjóvgunar- og ófrjósemisaðgerða.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir að taka þetta mál hér upp. Hún vísar m.a. í frumvarp sem hv. þingmaður er hér með fyrir þinginu. Við höfum átt samtöl um þetta mikilvæga mál áður og ég get tekið undir með hv. þingmanni að það er auðvitað mikilvægt að bregðast við lækkandi fæðingartíðni og gera allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við fólk og auka frjósemi. Hv. þingmaður er hér með mjög sanngjarnar, raunhæfar tillögur á því sviði. Við höfum hingað til unnið, eins og ég segi, að ýmsum umbótum þegar kemur að tæknifrjóvgunum. Við höfum til að mynda rýmkað skilyrði um geymslu og nýtingu fósturvísa og kynfrumna með frumvarpi um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun, sem við hv. þingmaður áttum góða samvinnu um. Með breytingunni er virtur réttur og vilji einstaklinga eða para til geyma kynfrumur og fósturvísa í tæknifrjóvgunarferli til að nýta það þótt áður hafi komið til sambúðarslita eða annar aðili látist, sem gerðist þá sjálfkrafa hér áður, þannig að við höfum unnið að ýmsum umbótum. Ég get alveg sagt það hér hreint út að mér hugnast vel þessar tillögur sem hv. þingmaður er með og vísar í frumvarp sem er fyrir velferðarnefnd. Ég hef þegar falið Sjúkratryggingum að semja um þjónustu hér innan lands, af því að þetta byggir allt á reglugerð. Þetta eru ágætishugmyndir sem hv. þingmaður varpar hér fram um að grípa fyrr inn í varðandi greiðsluþátttökuna sem er í reglugerðinni, 5% í dag en að fara með það í 75% og þá auka í 90%, af því að þetta er, eins og hv. þingmaður kom inn á, (Forseti hringir.) mjög þungt og erfitt ferli sem ber að styðja við. Ég skal grípa þetta áfram í seinna andsvari.