154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

niðurgreiðsla tæknifrjóvgunar- og ófrjósemisaðgerða.

[14:13]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Eins og hv. þingmaður fór hér ágætlega yfir er góð vísa aldrei of oft kveðin. Síðasta sumar, bara til upprifjunar, fórum við jafnframt í að útvíkka rétt til greiðsluþátttöku sem nær einnig til uppsetningar á frystum fósturvísum sem hafa orðið algengari samhliða framþróun þjónustunnar. Kostnaður þess er árlega um 70 millj. kr. Hv. þingmaður er með ágætishugmyndir hér um það hvernig við getum tekið á greiðsluþátttökunni eftir skiptum vegna þess að þetta reynir verulega á og það er mikilvægt að lagaumhverfið sé hagstætt og að fólk finni stuðninginn í gegnum regluverkið. Það er það sem við stefnum að. Ég held að við getum, eins og í fyrra tilviki, tekið utan um þessar hugmyndir í sameiningu og látið gott af leiða.