skammur fyrirvari fundarboðs.
Virðulegi forseti. Ég verð að beina orðum mínum sérstaklega til forseta þings í kjölfarið á uppákomu sem varð í umhverfis- og samgöngunefnd á föstudagskvöld. Á föstudagskvöld klukkan hálfsjö er haldinn fundur í umhverfisnefnd þar sem meiri hlutinn tilkynnir minni hlutanum það að stærsta verkefni sem nefndin hefur haft til meðferðar í allan vetur verði kastað í ruslið. Það verði ekki eitt af þeim málum sem verði afgreidd í vor og ég held að ástæðurnar liggi öllum ljósar fyrir; ágreiningur í meiri hlutanum einu sinni sem oftar. Ég vil gera athugasemdir við það að til þessa fundar var boðað á föstudagskvöldi með hálftíma fyrirvara. Formaður nefndarinnar hringdi sjálfur í nefndarmenn og þeir sem ekki náðu símanum misstu einfaldlega af fundi. Þetta er eitt stærsta mál Alþingis í vetur og þessi vinnubrögð eru svo ævintýralega léleg að ég óska eftir því að fá viðbrögð forseta þingsins um það hvort það sé boðlegt af formanni nefndar að haga sér með þessum hætti.