154. löggjafarþing — 124. fundur, 18. júní 2024.
skammur fyrirvari fundarboðs.
Forseti vill nú geta þess að það getur komið til þess að nefndafundir séu haldnir á óvenjulegum tíma og á þessum tímum þegar þingi er að ljúka og starfsáætlun hefur verið tekin úr sambandi. (Gripið fram í.) Forseti ætlar ekki að tjá sig um einstök atriði í þessu sambandi að þessu sinni en mun að sjálfsögðu afla upplýsinga um það hvernig þau mál standa varðandi tímasetningar og annað af því tagi.