154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skammur fyrirvari fundarboðs.

[14:16]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar 2017, sem setið hefur með einum eða öðrum hætti til dagsins í dag, var sérstök áhersla lögð á að efla virðingu þingsins og ég óska ráðherrunum hjartanlega til hamingju með hvernig til hefur tekist við það. Þetta er búið að vera hálfgerður skrípaleikur hérna, bæði í fyrravor og svo núna og það er að endurtaka sig. Ég kem hérna upp vegna þess að ég gerði athugasemd í morgun við herra forseta um að hann skyldi alltaf að hlaupa í vörn fyrir stjórnarliða án þess, eins og hann viðurkenndi á þeim fundi, að hafa kynnt sér málið. Og hér heldur hann áfram og heggur í sama knérunn. Ég bið herra forseta að kynna sér hvað átti sér stað og síðan kveða upp sinn dóm og minna hann á að hann er forseti allra þingmanna hér inni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)