skammur fyrirvari fundarboðs.
Herra forseti. Ég verð að segja að mér finnst svolítið sérstakt hvernig hæstv. forseti er að afgreiða þetta hér á þessum fundi, vitandi nákvæmlega hvernig liggur í málum. Auðvitað er það þannig að þó að það sé búið að kippa starfsáætlun úr sambandi og þó að það þurfi stundum að funda með stuttum fyrirvara þá er það algjört grundvallaratriði að þeir þingmenn sem sitja í viðkomandi nefnd séu boðaðir á fundinn. Það er algjört grundvallaratriði. Þegar fundað er með hálftíma fyrirvara og það næst ekki í alla fundarmenn vegna þess að menn fengu einmitt ekki neinn fyrirvara á þessu er auðvitað verið að ganga á rétt þingmanna og það vill þannig til að það er verið að ganga á rétt þingmanna stjórnarandstöðunnar í þessu tilfelli. Ég vil að forseti stigi svolítið fastar inn í þetta mál og segi okkur það hérna berum orðum hvort það sé ekki skilningur forseta, forseta þingsins alls, að þegar verið er að boða til nefndafunda með stuttum fyrirvara þá sé algjört frumskilyrði þess að hægt sé að funda (Forseti hringir.) að nefndarmenn séu meðvitaðir um að til fundar hafi verið boðað.