skammur fyrirvari fundarboðs.
Forseti. Fundarboðun er rosalega alvarlegt mál af því að meiri hluti sem getur boðað fund getur misnotað það vald til að afgreiða mál í rauninni fram hjá mótmælum og ýmsu svoleiðis þannig að það skiptir rosalega miklu máli að reglurnar í kringum fundarboðun séu skýrar. Í starfsreglum fastanefnda segir, með leyfi forseta: „Dagskrá og fundarboð skal tilkynnt nefndarmanni með tryggilegum hætti að jafnaði eigi síðar en daginn fyrir fund.“ Við áttum okkur alveg á því að þegar um svona hraða afgreiðslu er að ræða, í þinglokum o.s.frv., geta komið upp fundir á kvöldin og því um líkt, en það er alla jafnan látið vita í samhengi við boðaða fundi, þ.e. með dags fyrirvara, ef það frestast eitthvað: Já, við munum boða fund í kvöld, fylgist með. Og þegar það er verið að reyna að hringja í alla þingmenn, alla nefndarmenn sem eiga að mæta á fundinn og það næst ekki í einhvern, þá er ekki hægt bara að drífa sig og halda fundinn samt. (Forseti hringir.) Það er rosalega alvarlegt að skilja fólk út undan í nefndarstörfum. Það er rosalega alvarlegt. (Forseti hringir.) Mér finnst ekki gott að forseti taki það ekki alvarlegar en þetta.