154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skammur fyrirvari fundarboðs.

[14:21]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Sú ákvörðun hjá stjórnarliðum að ljúka ekki samgönguáætlun á þessu þingi eru mikil vonbrigði fyrir alla hagaðila sem að þessu máli koma. Nefndin hefur haft þetta mál til meðferðar síðan í haust og um 70 aðilar hafa sent nefndinni umsagnir en samt ákveður meiri hlutinn að slaufa þessu. Það er alveg hreint ótrúlegt að samgönguáætlun sé tekin af dagskrá.