154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skammur fyrirvari fundarboðs.

[14:22]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Hér er rætt um fundarboð sem fór út með tölvupósti og einnig var reynt að hafa samband við nefndarmenn símleiðis, en fór líka í tölvupósti. Ekki reyndist unnt að koma fyrr á þeim fundi sem frestað var í hádeginu á föstudaginn en jafnframt mikilvægt að geta upplýst sem fyrst um þá niðurstöðu að óhjákvæmilegt væri að fresta afgreiðslu samgönguáætlunar til haustsins. Núverandi samgönguáætlun er enn í gildi en bregðast þarf við varðandi Hafnabótasjóð og áríðandi var að ganga strax í það verk og flytja um það nefndarmál sem nefndin afgreiddi frá sér á fundi í morgun. Nefndarmönnum hefði mátt vera ljóst að stefnt var að því að fundur yrði síðar um daginn en miður og óheppilegt ef það hefur ekki verið nægilega skýrt. Æskilegt var að boða fund eins fljótt og hægt væri að afloknum þingfundi, fremur en að gera það síðar að kveldi eða fjórum dögum síðar. Starfsáætlun Alþingis hefur verið tekin úr sambandi og ljóst að við slíkar aðstæður síðustu daga þingsins er oft fundað með skömmum fyrirvara á ýmsum tímum. Við hljótum að sameinast um það hér að klára sem mest af málum bæði meiri hluta og minni hluta. (Forseti hringir.) Á fundinum voru einnig afgreidd frá nefndinni tvö mál um tekjustofna sveitarfélaga, þ.e. gjaldfrjálsar skólamáltíðir og úrvinnslugjald.