skammur fyrirvari fundarboðs.
Virðulegur forseti. Í kjölfar orða formanns nefndarinnar er kannski ágætt að halda því til haga að ég sit þar sem varaformaður. Það var enginn tölvupóstur sendur. Það var hringt í nefndarmenn með hálftíma fyrirvara. Formaður hafði afboðað fund í hádeginu og hafði ekki svarað ítrekuðum póstum um það hvort til stæði að funda. Hann er ekki að lýsa atvikum eins og þau voru og er að sýna nefndinni en ekki síður verkefnunum sínum ævintýralega óvirðingu. Hann veit hvernig þetta var unnið af hans hálfu og ábyrgðin er hans á því að vinna með þessum hætti.
Síðan er það þannig að forseti þingsins getur ekki setið hér endalaust og þóst ekki sjá brotin. Værum við stödd á EM með dómara sem heldur fyrir augun á sér og talar eilíflega um það að hann þurfi að kynna sér málin, þá væri eitthvað mikið að í leiknum. Það er búið að ræða þetta hér á fundum með þingflokksformönnum. Það er búið að lýsa því fyrir forseta hvernig fundurinn var. Það voru gerðar athugasemdir á fundi umhverfisnefndar í dag. Atvik málsins liggja ágætlega ljós fyrir og nú þurfa menn bara að stíga í framfótinn og þora einu sinni að tala.