154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

skammur fyrirvari fundarboðs.

[14:24]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Forseti. Vegna orða hv. þm. Bjarna Jónssonar um að mönnum ætti að vera ljóst hvað hann var að hugsa af því að starfsáætlun var tekin úr sambandi þá ætla ég að fá að mótmæla því. Nú hef ég verið þingflokksformaður hér í sjö ár. Ég kannast ekki við að nefndarformenn stjórnarmeirihluta hafi gengið út frá því að þingmenn stjórnarandstöðu væru hugsanalesarar né að þeir hefðu yfirleitt í sér að setja sig inn í það hugarangur sem stjórnarþingmenn eiga við að etja hverju sinni. Það er einfaldlega rangt að það sé hefðin hér eftir að starfsáætlun er tekin úr sambandi að menn geti blásið til fundar með þeim hætti sem formaður umhverfis- og samgöngunefndar gerði síðastliðinn föstudag. Það er rangt. Það er líka rangt að vísa í einhver ímynduð orð starfsmanna nefndasviðs þegar staðreyndin er, líkt og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson las hér upp áðan, að hefðin er sú að hafa það með sólarhringsfyrirvara ef hægt er og ef það er ekki hægt er látið vita um leið og (Forseti hringir.) fyrri fundur er blásinn af: Líkur eru á fundi seinni partinn í dag. Þetta er ekkert svakalega erfitt. (Forseti hringir.) Það þarf ekki nema örlítið brot af andskotans virðingu, afsakið orðbragðið, forseti.