Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að hér sé verið að klára 2. umræðu um þetta mikilvæga mál til stuðnings Grindvíkingum og fyrirtækjum þar, en eins og komið hefur fram í þeirri góðu umræðu sem var um þetta mál þá er enn þá fullt af fólki og fyrirtækjum sem er að falla á milli skips og bryggju þegar kemur að stuðningi. Það er því mjög mikilvægt að við hér inni tæklum vankanta og finnum lausnir fyrir það fólk sem enn þá situr eftir með sárt ennið þrátt fyrir þær aðgerðir sem við höfum farið hér í.