154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:29]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Allur þingsalurinn hefur verið jákvæður gagnvart þeim málum sem lögð hafa verið fram til stuðnings fólki og fyrirtækjum í Grindavík og það ber að þakka fyrir það. En það má spyrja sig að því hvort þetta mál hafi verið það mál sem mikilvægt var á þessum tímapunkti. Ég hef hvergi séð það í opinberri umræðu að óskað hafi verið eftir þessu tiltekna máli. Það getur vel verið að einhverjir hafi í samskiptum beint við ráðuneyti verið að fara fram á að þetta væri málið en við erum búin að eiga samskipti við tugi einstaklinga úr Grindavík sem hafa kallað eftir öðrum úrræðum til hjálpar minni fyrirtækjum, t.d. í Grindavík, og á það hefur ekki verið hlustað og ég get ekki séð að það eigi neitt að hlusta á það. Viðreisn mun að sjálfsögðu greiða atkvæði með þessu máli en kallar eftir frekari úrræðum.