154. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2024.

Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.

1131. mál
[14:30]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við í Samfylkingunni styðjum auðvitað þetta mál en líkt og hér hefur verið sagt þá er þetta kannski ekki allra brýnasta málið þó að það sé ágætt að samþykkja það. Við bíðum enn eftir öðru frumvarpi sem er fast inni í nefnd, virðist vera, þar sem verið er að tala um rekstrarstyrki og húsnæðisstyrki og framlengingu og betrumbætur á úrræðum sem nú þegar eru í gildi og ég vil bara hér, herra forseti, kalla eftir þessu frumvarpi sem allra fyrst. Þarna eru dagsetningarmál á ferðinni. Þarna eru mikil hagsmunamál fyrir Grindvíkinga og auk þess stendur hér upp úr hverjum manni á hátíðarstundum að þegar 1% þjóðarinnar lendir í vandræðum þá komi hin 99% og standi með þeim. En það er bara ekki staðið með öllum í Grindavík og við þurfum að gera það, girða okkur í brók og gera betur fyrir Grindvíkinga.