Afurðasjóður Grindavíkurbæjar.
Frú forseti. Ég styð þetta mál og tek undir að það er fagnaðarefni hvað það hefur náðst mikil samstaða hér á þinginu um þau mál sem ganga út á það að aðstoða fólk vegna náttúruhamfara í Grindavík. Ég vil hins vegar taka undir það sem hér hefur komið fram líka, að við skoðum aðeins forgangsröðunina. Það eru fleiri aðgerðir sem þarf að grípa til og hefur verið kallað eftir. Ég vil bara vekja athygli á því og að við missum ekki sjónar á því að það er fleira sem þarf að gera. Við þurfum kannski að hafa það svolítið í huga í forgangsröðuninni á þessum síðustu dögum þingsins.